Reynir Aðalsteinsson látinn

  • 26. janúar 2012
  • Fréttir
Reynir Aðalsteinsson látinn

Reynir Aðalsteinsson tamningameistari lést í gærmorgun, miðvikudaginn 25. janúar, eftir stutta baráttu við illvígt krabbamein.

 
Reynir var einn virtasti og snjallasti reiðmaður og reiðkennari íslandshesta heimsins og er ævistarf hans ómetanlegt. Alla tíð var Reynir kappsamur sýningar- og keppnismaður og var þar í fremstu röð. Reiðmennska hans var ávallt fáguð, framkoman prúðmannleg og hestar hans mjúkir og sáttir. Reynir var ötull við að miðla af þekkingu sinni og hafa hundruð knapa, bæði hérlendis og erlendis, notið leiðsagnar hans.
 
Reynir bjó lengst af ásamt fjölskyldu sinni á Sigmundarstöðum í Borgarfirði, en fluttist í Vestur-Húnavatnssýslu fyrir um áratug. Síðustu ár bjó hann á Hvanneyri og starfaði sem yfirreiðkennari hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar útbjó hann kennsluefni og nám fyrir hinn almenna reiðmann, sem notið hefur mikilla vinsælda. Reynir var 67 ára þegar hann lést. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex uppkomin börn.
 
Eiðfaxi sendir aðstandendum og vinum Reynis Aðalsteinssonar samúðarkveðjur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link