Bestu kynbótahross sögunnar-

  • 18. júní 2012
  • Fréttir
Bestu kynbótahross sögunnar-

Þegar mestu hæfileikahross allra tíma eru skoðuð þá hafa alls 23 hross hlotið einkunn yfir 9,00 fyrir hæfileika og þar af er 1 geldingur, 6 hryssur og 16 stóðhestar.  Aðeins einn stóðhestur hefur farið yfir 9,00 utan Íslands en það var Garri frá Reykjavík.  Hæst dæmda hross sem ekki er fætt á Íslandi er Prins frá Knutshyttan en hann er með aðaleinkunn uppá 8,81.

Af fallegustu hrossum allra tíma hafa 28 hross hlotið 8,70 eða hærra fyrir sköpulag og þar af tvö sem hafa hlotið yfir 9,00 en það eru þau Goði frá Þóroddsstöðum og Díva frá Gategården.  Þessi fögru hross eru flest fædd hér á landi eða 20 en þrjú eru sænsk, tvö eru norsk, tvö eru dönsk og eitt er franskt.

Svo þegar aðaleinkunn er skoðuð þá hafa 16 hross hlotið 8,70 eða hærra í aðaleinkunn. Þar af eru 5 hryssur og 11 stóðhestar. Þrjú af þessum sextán eru fædd hér á landi tvö í Svíþjóð og eitt í Danmörku.

Af þessu má sjá að forustan er enn hér á landi þrátt fyrir það að talsvert hafi verið selt úr landa af topp góðum ræktunargripum.  En þegar skoðað er hvenær þessi hross komu til dóms þá vekur athygli að hæstu sköpulagsdómarnir falla á árunum 1962 til 1974 og svo langflestir eftir árið 2000. Svo þegar hæstu hæfileikadómarnir eru skoðaðir þá hafa öll þau hross sem farið hafa yfir 9,00 verið dæmd árið 2000 eða seinna utan dómsins á Rauðhettu frá Kirkjubæ sem hlaut sinn hæsta dóm á LM1994. Þetta sýnir hve miklar ræktunarframfarir hafa orðið á síðustu 10-15 árum.

Eins og flesti vita þá hefur Spuni frá Vesturkoti hlotið hæsta hæfileikadóm sem gefin hefur verið 9,25 og hæstu aðaleinkunn allra 8,92. En Hrannar frá Flugumýri II hlaut nú í vor fimmtu hæstu hæfileikaeinkunn sögunar og fjórðu hæstu aðaleinkunn sögunar 8,85. Tvær af hæstu aðaleinkunnum sögunar hafa verið gefnar á Landsmótum og þá er spurningin hvort nýtt met verði sett á LM2012 í Reykjavík?

[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link