Meistaradeild í hestaíþróttum 2012
Sigurður Sigurðarson varð efstur í Meistaradeildinni í fyrra og er mættur snarbrattur til leiks.
Nú er aðeins rúm vika í að níunda mótaröð Meistaradeildar í hestaíþróttum hefjist en fyrsta mótið verður haldið í Ölfushöllinni fimmtudaginn 26. janúar. Keppt verður í fjórgangi. Í ár eins og undanfarin ár er deildin skipuð mörgum af þekktustu knöpum landsins. Sjö heimsmeistarar eru í liðum deildarinnar.
Eingöngu fjórir knapar hafa sigrað deildina í þau átta skipti sem hún hefur verið haldin og þrír keppa í deildinni í vetur. Gaman verður að sjá hvort nýtt nafn verður ritað á bikarinn þegar flautað verður til leiksloka föstudaginn 30. mars. Hér að neðan má sjá sigurvegara deildarinnar frá upphafi:
Meistari 2001 Sigurður Sigurðarson
Meistari 2002 Sigurbjörn Bárðarson
Meistari 2006 Atli Guðmundsson
Meistari 2007 Viðar Ingólfsson
Meistari 2008 Viðar Ingólfsson
Meistari 2009 Sigurbjörn Bárðarson
Meistari 2010 Sigurbjörn Bárðarson
Meistari 2011 Sigurður Sigurðarson
Sala á ársmiðum er í fullum gangi hjá liðunum og í verslunum Top Reiter, Líflandi og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Ársmiðinn kostar 5.000 krónur og innifalinn í miðaverðinu er dvd diskur frá deildinni 2011. Aðgöngumiði á hvert mót deildarinnar er 1.500 krónur því er um að gera fyrir þá sem hafa í huga að mæta á flest mót deildarinnar í vetur að tryggja sér ársmiða.
Mótin eru öll haldin í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, nema eitt en það er Skeiðmótið sem fer fram 24. mars.
Dagskrá Meistaradeildar 2012
26. janúar, fimmtudagur – Fjórgangur
9. febrúar, fimmtudagur – Gæðingafimi
23. febrúar, fimmtudagur – Tölt
8. mars, fimmtudagur – Slaktaumatölt & flugskeið
24. mars, laugardagur – Gæðingaskeið og 150m skeið – úti
30. mars, föstudagur – Lokamót Fimmgangur og verðlaunaafhendingar með
grilli og fjöri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári