Sölusýning í hestamiðstöð Austurlands

  • 15. október 2012
  • Fréttir
Sölusýning í hestamiðstöð Austurlands

Sölu- og markaðsdagur Freyfaxa og Hraust fór fram í Hestamiðstöð Austurlands í gær laugardag. Þar var margt um manninn og um 20 hross sýnd á sölusýningu. Auk þess var skiptimarkaður með notuð reiðtygi, hnakka og fleira. Oft er hægt að gera góð kaup í notuðu „dóti“.

Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur dagur er haldin eystra og voru viðtökur framar vonum. Hestaáhugamenn á Austurlandi fjölmenntu og mátt sjá mörg ný og gömul andlit. Þrátt fyrir að hestaáhugamenn hafi oft á tíðum verið grimmari á að versla og draga upp veskin, þá var gerð verslun á staðnum af yngra fólkinu enda Fjórðungsmót framundan. Á meðan héldu eldri og reyndari hestakaupmenn að sér höndum.
 
Meðfylgjandi er sölulisti hrossa:
Verðflokkar:      A = 0-250Þ B = 250Þ-500Þ C = 500Þ-1M D = 1M +
 
Sýningaskrá:
1. Marimba frá Víðivöllum fremri – IS2004275333
Faðir: Flygill frá Vestri Leirárgörðum Móðir: Héla frá Valþjófsstað
Söluaðili: Jósef Valgarð og Dagrún Drótt. Sími: 8635215
Verðflokkur: C
Marimba er alhliða Reiðhryssa
 
2. Drottning frá Egilsstaðabæ – IS2005276265
Faðir: Andvari frá Ey Móðir: Dimma frá Egilsstaðabæ
Söluaðili: Ármann Magnússon. Sími: 892-4968
Verðflokkur: D
Drottning er alsystir Dimmbrá frá Egilsstaðabæ sem er fyrstu verðlauna klárhryssa.
 
3. Snót frá Laxárnesi – IS2007225646
Faðir: Klettur frá Hvammi Móðir: Stelpa frá Strönd
Söluaðili: Ragnar Magnússon Sími: 8961026
Verðflokkur: B
 
4. Bangsi frá Reykjavík –  IS2001225269
Faðir: Tígull frá Gularási Móðir: Drottning frá Reykjavík
Söluaðili: Áskell Einarsson Sími: 8643842
Verðflokkur: A
 
5. Blíða frá Egilsstaðabæ – IS2006276265
Faðir: Grásteinn frá Brekku, Fljótsdal Móðir: Blæja frá Árgerði
Söluaðili: Ármann Magnússon. Sími: 892-4968
Verðflokkur: D
 
6. Slóð frá Viðivöllum fremri –  IS2007275280
Faðir: Höttur frá Hofi Móðir: Varða frá Víðivöllum fremri
Söluaðili: Jósef Valgarð og Dagrún Drótt. Sími: 8635215
Verðflokkur: C
Bráðefnilegt tryppi.
 
7. Dís frá Fákshólum – IS2007281419
Faðir: Gjafar frá Eyrarbakka Móðir: Perla frá Ásmúla
Söluaðili: Ragnar Magnússon Sími: 8961026
Verðflokkur: C
 
8. Álsól frá Hryggstekk – IS2008276137
Faðir: Áli frá Eyrarlandi Móðir: Sóla frá Strandarhöfði
Söluaðili: Guðröður Ágústsson Sími: 8638810
Verðflokkur: B
Genetískt vindótt
 
9. Flans frá Víðivöllum fremri – IS2005175333
Faðir: Gustur frá Hóli Móðir: Héla frá Valþjófsstað
Söluaðili: Jósef Valgarð og Dagrún Drótt. Sími: 8635215
Verðflokkur: D
Úrtökugóður fjórgangari. Býr yfir þó nokkru skeiði en það hefur verið látið alveg vera þar sem hann er góður og hann er, og ekki þörf á skeiðinu að sinni.
 
10.  Sirkill frá Bakkagerði – IS2005175170
Faðir: Kormákur frá Flugumýri II  Móðir: Þruma frá Ketilsstöðum
Ragnar Magnússon Sími: 8961026
Verðflokkur: D
 
11.  Glæta frá Sveinatungu – IS2004236610
Faðir: Gráni frá Svignaskarði Móðir: Draumey frá Sveinatungu
Söluaðili: Jósef Valgarð og Dagrún Drótt. Sími: 8635215
Verðflokkur: D
 
12.  Erna frá Efri Rauðalæk – IS20072286897
Faðir: Seifur frá Efri Rauðalæk Móðir: Mill frá Kýrholti
Söluaðili: Áskell Einarsson Sími: 8643842
Verðflokkur: A
 
13.  Þokki frá Hreiðarsstöðum – IS2006175540
Faðir: Taktur frá Tjarnarlandi Móðir: Glóð frá Byrgisskarði
Söluaðili: Einar Kristján Eysteinsson Sími: 8633681
Verðflokkur: B
Myndarlegur hestur litfagur og geðgóður. Fínasti reiðhestur mjúkur á tölti en er búin að vera klárgengur. Mjög góðar grunn gangtegundir hjá honum. Góður reiðvilji. Fínn hestur, ennþá nokkuð hrár sem er gott tækifæri fyrir ungling til að þróa hann með sér..
 
14.  Gloría frá Breiðumörk – IS2006275151
Faðir: Völlur frá Árbæ Móðir: Hetta frá Breiðumörk 2
Söluaðili: Ragnar Magnússon Sími: 8961026
Verðflokkur: D
 
15.  Kani frá Grund – IS2003175540
Faðir: Ljómi frá Svaðastöðum Móðir: Kolka frá Brimnesi
Söluaðili: Einar Kristján Eysteinsson Sími: 8633681
Verðflokkur: B
Stór og myndarlegur klárhestur. Hann er duglegur reiðhestur vel viljugur með  flott skref á tölti getur hentað í léttari keppni, eins notaði ég hann mikið í hestaferð í sumar. Hentar vel sem smala, ferða og keppnishestur ekki amalegt það gott fólk !!!!
 
16.  Þoka frá Eskifirði – IS2002276073
Faðir: Hrókur frá Glúmsstöðum Móðir: Sunna frá Eskifirði
Söluaðili: Eiríkur Bjarnason Sími: 8942414
Verðflokkur: A
Gæf og góð meri. Mjög vel viljug. Hún er með allan gang en sýnir brokkið síst.
 
17.  Eik frá Grund 2 – IS2008275XXX
Faðir: Gígur frá Strandarhöfði Móðir: Ösp frá Hvannstóði
Söluaðili: Guðröður Ágústsson Sími: 8638810
Verðflokkur: D
Alhliða kynbótameri fyrir þá sem vilja vera með á Fjórðungsmóti 2013. Þessi meri á þegar eitt fyrstu verðlaunasystkini. Fleiri systkini lofa góðu.
 
18.  Bjarmi frá Egilsstöðum
Faðir: Hugi frá Hafsteinsstöðum Móðir: Glóra frá Þrándarstöðum
Söluaðili: Herdís Magna Gunnarsdóttir
Verðflokkur: B
Bjarmi er fallegur ljúfur og traustur hestur sem allir geta riðið. Hann hefur góðar grunngangtegundir, skortir meira rými á tölti en er alltaf að bæta sig.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link