Gáski frá Vindási seldur til Noregs
Stóðhesturinn Gáski frá Vindási hefur verið seldur til Noregs og er farinn úr landi.
Gáski er 8 vetra rauðstjörnóttur undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Stjörnu frá Vindási úr ræktun Kára og Ingibjargar sem kennd er við Vindás í Hvolhreppi.
Gáski er með í kynbótadómi 8.41 þar af 8.58 fyrir hæfileika sem er hæsti hæfileikadómur af afkvæmum Gára.
Þess má geta að tveir aðrir Stjörnusynir eru í Noregi, keppnishestarnir Eitill frá Vindási og Hárekur frá Vindási.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson