Framtíð Landsmóts ehf. rædd á Landsþingi LH
Haraldur Þórarinsson, formaður LH og stjórnarformaður Landsmóts ehf..
Stjórn Landssambands hestamannafélaga leggur til við Landsþing LH, sem haldið verður í Reykjavík 19. og 20. október, að þingið feli stjórninni að endurskoða rekstrarform Landsmóts ehf. í samstarfi við Bændasamtök Íslands, sem eiga þriðjung í félaginu á móti tveimur hlutum LH.
Í greinargerð með tillögu frá stjórn LH kemur fram að umgjörð og utanumhald Landsmótanna hafi batnað með tilkomu Landsmóts ehf., sem var stofnað um aldamótin síðustu. Rekstrargrundvöllur mótanna sé hins vegar ótryggur og lítið megi út af bera svo illa fari. Í því sambandi má minna á að félagið skuldar á milli 40 til 50 milljónir króna, sem rekja má til þess að LM2010 var frestað vegna hestapestarinnar sem kom upp þá um veturinn og varð að faraldri.
Einnig kemur fram að rekstrarforsendur þeirra svæða sem byggð hafa verið upp til Landsmótahalds séu ekki góðar og svæðin séu í stöðugum rekstrarörðugleikum þrátt fyrir að hafa fengið mikið fjármagn til uppbyggingar, fyrst frá Landsmótunum sjálfum og síðar frá ríki og sveitarfélögum.
Haraldur Þórarinsson, formaður LH og stjórnarformaður Landsmóts ehf. segir að stjórn LH muni ekki leggja fram mótaðar hugmyndir að breyttu rekstrarformi á þinginu. Með tillögunni sé verið að kalla eftir umræðu og fá fram hugmyndir.
„Ef sú umræða leiðir til þess að þingið feli stjórn LH að fara í þessa endurskoðun þá munum við gera það í samvinnu við Bændasamtökin. Landsmót ehf. var meðal annars stofnað með það fyrir augum að félagið safnaði sjóði til að mæta áföllum. Það hefur ekki tekist. Hagnaður af mótunum hefur ekki verið nægur og þegar koma högg eins og hestapestin 2010 þá erum við berskjölduð. Félagið er í rauninni óstarfhæft með þær skuldir sem hvíla á því og ljóst að við slíkt ástand verður ekki búið,“ segir Haraldur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH