Farið með gát í hálkunni

  • 17. janúar 2012
  • Fréttir
Farið með gát í hálkunni

Asahláka getur ekki aðeins hrellt okkur tvífætlinganna eins og hún hefur gert undanfarna sólarhringa. Hálkan getur einnig orsakað slys á hestunum okkar, þeir geta runnið til og hrasað. Dæmi eru um alvarlegar tognanir vegna slíkra hálkuslysa. Tognanir geta varið lengi og orsakað langvarandi eymsl.

Björgvin Þórisson dýralæknir segir hestamenn hafa augljóslega farið varlega að undanförnu og hafa réttilega veigrað sér að fara í útreiðatúra þegar klakabreiður eru á völlum og reiðvegum. Engar tilkynningar um hálkuslys hafa borist til hans en samkvæmt veðurspám er búist við áframhaldandi frosti í vikunni, slyddu og él til skiptis – ekki beint vænlegt veður til útreiða.

Hann brýnir því fyrir hestamönnum að fara áfram með gát á svellinu næstu daga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link