Svarbréf frá Sigurði
Mikið hefur verið í umræðunni meint agabrot af hendi Sigurðar Ævarssonar í tengslum við Gæðingaveislu Sörla. Sigurður Ævarsson sinnti starfi mótstjóra á mótinu og telst háttsemi hans ekki samræmast því sarfi sem hann átti að sinna á gæðingaveislunni. Málið snýr að því hvernig staðið var að afskráningu Rimmu frá Miðhjáleigu í A úrslitum í áhugamannaflokki en dóttir Sigurðar Ævarssonar, Hafdís Anna Sigurðardóttir, var knapi á Rimmu. Úrskurð aganefndar LH má lesa í heild sinni hér.
Jens Einarsson skrifaði pistill sem kemur til varnar Sigurðar en í gær sendi Sigurður frá sér bréf til að svara þeirri umfjöllun sem hefur átt sér stað. Það er birt hér að neðan:
„Margt hefur verið sagt um þetta mál mitt að ég hafi fengið áminningu frá Aganefnd LH,sumt rétt og annað rangt eins og gengur.Aganefnd fer þarna algjörlega nýja leið varðandi kærur sé miðað við fyrri dóma,það er klárt að kæreufrestir eru að engu hafðir og kæran er ekki lögð rétt fram, þ.e það er ekkert tryggingarfé með henni.Kæran kemur fram á sunnudagskvöld en samkv reglum er kærufrestur ½ tími eftir að móti líkur,en mótinu lauk um kl 21 á laugardagskvöldi.Yfirdómnefnd tekur kæruna til umfjöllunar á mánudagskvöldi og vísar henni frá vegna tímafrests,en telur í sinni skýrslu sem þeir hafa 48 klst til að skila að ég hafi látið vita að umræddum hestaskiftum með of stuttum fyrirvara,ég lét þul í afl vita með nægum fyrirvara og er með póst því til staðfestingar,einnig er ég með póst frá skrifstofu LH sem segir að skýrslan og kæran hafi komið frá yfirdómnefnd á þriðjudagsmorgni þ.e 60klst eftir mótslok.Upphafsmaður kærunnar hafði hinnsvegar sent kæruna til lh í tölvupósti á mánudeginum áður en yfirdómnefnd tók málið fyrir.En samkvæmt fyrri dómum aganefndar tekur hún ekki við kærum sem berast frá einstaklingum og benda raunar á að kærufrestur sé hálftími og yfirdómnefnd verði að fjalla um málið svo það sé tækt í umfjöllun aganefndar.
Í úrskurðinum eru m.a talinn upp fyrri störf mín og veit ég ekki hvort það á að gera sekt mína meiri eða minni en ég hef verið mótstjóri á 6 landsmótum og mér er mjög kunnugt um reglur almennt og þær reglur sem samþykktar voru á lh þingi sl, um að yrði að láta vita af hestaskiftum minnst 1 klst fyrir úrslit annars færi viðkomandi í 2vikna bann,þeir segja að háttsemi mín hafi rírt virðingu fyrir mótinu,það var ekki ég sem af einhverjum óskýrðum metnaði lét of ungan knapa keppa í barnaflokki og gerði þar með flokkinn ólöglegan fyrir öllum öðrum börnum,það var ekki ég sem þurfti að yfirfara ráslista fyrir birtingu eða gat ekki notað þennan eða hinn dómarann,það verður einhver annar að taka það á sig að umræðan er eins og hún er, og þar með virðingin fyrir mótinu.En við í Sörla höfum verið rómuð fyrir gott mótahald og þannig mun það verða áfram þrátt fyrir þessa uppákomu.
Að kærunni sjálfri, það er klárt mál að ég ræddi við viðkomandi og það er klárt mál að ég hafði þann skilning að það sem ég gerði væri honum fulljóst,ég lét fleiri vita t.d vallarstjótrann og annan starfsmann í dómpalli og enginn gerði minnstu athugasemd við það,en það er jafnklárt mál að ég hefði átt að hafa vitni af þessu samtali þó að ég hafi tekið við nánast öllum afskráningum og breytingum á hestum og knöpum hjá Sörla allt keppnistímabilið,og ávallt treyst á heiðarleika og orð viðkomandi aðila,en þar sem hlutirnir snéru að mér þá hefði ég átt að gera þetta á annan hátt,það tek ég á mig og bið alla afsökunnar á þessu verklagi mínu.Hvorki yfirdómnefnd né nokkur úr mótstjórn gerðu nokkra athugasemd við verklagið á meðan mótið eða verðlaunaafhendingar sem voru efirá inni voru að klárast,mín firsta vitneskja um þetta mál allt kom frá öðrum á suunudagskvöldið.
Ég tel að það þyrftu fleiri að skoða sinn gang varðandi þetta mál og framsetnigu þess,ég tel að Aganefndin þurfi að fara yfir sín mál þeir skauta annsi létt yfir nokkuð margar reglur varðandi áðunefnda tímafresti boðanir á yfirheyrslufundinn o.fl,það er vont ef trú og traust á kerfi sem á að vera yfir vafa hafið vinnur á þessum nótum,ég tók þá ákvörðun að áfría ekki þessum úrskurði enda liðinn sá tími sem er gefinn upp hjá ÍSÍ, og af því að ég hef lítinn áhuga á að vinna þetta mál á formsatriðum, en vona samt innilega að menn taki þessi mál til skoðunar, og jafnvel fari í sjálfsskoðun.Hugsi um hestamennskuna og hvað við erum og eigum að vera að gera þar, og fyrir hverja við erum að halda mót og aðrar uppkomur í félögunum.
Ég hef sagt mitt síðasta orð um þetta mál,hef lært mikið og uppgötvað margar hliðar mannlífsinns,ég hlakka til komandi hestamennsku vetrar með fullt af mótum og drengilegri keppni og blómstrandi mótahaldi í Sörla Ps áhugamenn um heiðarlegar uppbyggandi íþróttir
Norður kóreski „snillingurinn“ Kim Jong Il fór golfhring um daginn á 38 höggum undir pari s.s 25 höggum betri árangri en til er skráður, þar af 5 holur í höggi.Þetta gerði þessi kappi að 10 „traustum vinum“ sem vitnum ásjáandi, en fær þetta ekki skráð sem met,og er því hættur golfiðkun. SKRÝTIÐ. „
Siggi Ævarss
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH