Stjarna hlaut Glettubikarinn
Ein hryssa uppfyllir skilyrði til að hljóta heiðursverðlaun í ár en heiðursverðlaun hljóta þær hryssur sem eru með 116 stig eða hærra í aðaleinkunn kynbótamats og eiga a.m.k. 5 dæmd afkvæmi. Sú hryssa sem er með hæstu aðaleinkunn hlýtur Glettubikarinn.
Stjarna frá Kjarri er eina hryssan sem hlýtur heiðursverðlaun í ár. Hún er fædd árið 1998 og er undan Gusti frá Hóli og Þrumu frá Selfossi. Stjarna var ræktuð af Garðari Einarssyni en eigandi hennar í dag er Helgi Eggertsson í Kjarri. Stjarna var sýnd fimm vetra og hlaut þá í aðaleinkunn 8,28. Dæmd afkvæmi Stjörnu eru Spói frá Kjarri (8.30), Tildra frá Kjarri (8.21), Máfur frá Kjarri (8.08), Maríuerla frá Kjarri (8,02) og Kjói frá Kjarri (7,87). Aðaleinkunn kynbótamats Stjörnu er 117 stig.
Stjarna á 12 skráð afkvæmi og eru sjö af þeim undan Stála frá Kjarri en einnig hefur Stjörnu verið haldið undir Aron frá Strandarhöfði, Vilmund frá Feti, Þórodd frá Þóroddsstöðum og Sæ frá Bakkakoti. Hæst dæmda afkvæmi Stjörnu, Spói frá Kjarri, er undan Stála en hann hlaut 8,23 fyrir hæfileika.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands