Meistaradeildin í hestaíþróttum

  • 10. janúar 2012
  • Fréttir

Lena Zielinski er mætt í Meistaradeildina á ný og hefur tekið sæti í liði Auðsholtshjáleigu.

Fyrsta mót 26. janúar í Ölfushöll

Fyrsta mót Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum á Suðurlandi fer fram 26. janúar í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli. Keppt verður í fjórgangi. Að venju er hægt að kaupa ársmiða á mótaröðina og kostar hann 5000 þúsund krónur. Innifalið í miðaverðinu er DVD diskur sem inniheldur alla sjónvarpsþættina sem sýndir voru á RÚV í fyrra.

Þegar hafa verið kynnt þrjú lið deildarinnar. Knaparnir eru flestir kunnuglegir.

Lið Auðsholtshjáleigu er skipað þeim Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur, Eyvindi Mandal Hreggviðssyni, Hauki Baldvinssyni og Lenu Zielinski.

Lið Norður-Gatna er skipað þeim Hinriki Bragasyni, Huldu Gústafsdóttur, Ragnari Tómassyni og Teiti Árnasyni.

Lið Hrímnis er skipað þeim Viðari Ingólfssyni, Artemisiu Bertus, Daníeli Inga Smárasyni og John Kristni Sigurjónssyni.

Sjá nánar um Meistaradeildina HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link