Járningar og hófhirða I

  • 5. janúar 2012
  • Fréttir
Járningar og hófhirða I

Endurmenntun LbHÍ stendur fyrir námskeiði um járningu og hófhirðu sem einkum er ætlað bændum, hrossaræktendum og áhugamönnum.      

                   
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum.
 
Tvö námskeið:
1)       Tími: Lau. 14. jan., kl. 10:00-18:00 og sun. 15. jan., kl. 9:00-16:00  (19,5 kennslustundir) í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum.
                Verð: 22.900kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar).
 
2)       Tími: Bóklegt þri. 24. jan. kl 20:00-22:00, bóklegt fös. 27. jan. kl 17.00-19.00 og verklegt lau. 28. jan kl 09:00-17:00 (16,5 kennslustundir) á Kjóavöllum. Bóklegt er kennt í samkomusal reiðhallar Gusts í Glaðheimum.
Verð: 18.500 fyrir skuldlausa félagsmenn Gusts/Andvara. Ef sæti verða laus fyrir aðra er verðið 22.900 kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar).

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link