Klár í keppni
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, mun í dag birta skýrslu um heilbigðisskoðun á keppnishrossum á LM2011 á www.mast.is. Skoðunin hefur vinnuheitið „Klár í keppni“.
Í skýrslunni kemur fram að 51 hross í gæðinga og ungmennakeppni, eða 15% allra hrossa sem þátt tóku í þessum flokkum, greindust með áverka á tannlausa bilinu í munni, þar sem kjálkabeinið er aðeins umlukið þunnri beinhimnu, sem er afar tilfinningarík. Sautján hross greindust með annars stigs áverka á þessum stað. Áverkarnir eru fyrst og fremst raktir til stangaméla með tunguboga.
Þetta er í fyrsta sem sem þetta svæði er skoðað sérstaklega og eru þessir áverkar hrein viðbót við áverka í munni sem áður hafa verið greindir (á slímhúð innan á kinnum og í munnvikum), sem á LM2011 greindust í fjórðungi hrossanna í umræddum flokkum líkt og á fyrri mótum.
Olnbogaágrip er áhyggjuefni að mati Sigríðar, og eru þau einkum áberandi í A flokki gæðinga. Þau eru rakin til of langra og stórra hófa og of stórra skeifna.
Í niðurlagi skýrslunnar segir segir að ljóst sé að kröfur til keppnishrossa séu miklar og oft á mörkunum að hrossin standi undir þeim án þess að verða fyrir líkamlegu tjóni. Skýrslan verður birt í heild á vef MAST innan skamms.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH