Stóðhestaveisla í Ölfushöll á laugardaginn
„Forsala hafin
Hin árlega stórsýning, Stóðhestaveislan, fer fram laugardaginn 30. mars nk. Í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli.
Þar munu koma fram stóðhestar á ýmsum aldri, landsmótssigurvegarar og stjórstjörnur í bland við yngri vonarstjörnur víðs vegar af landinu. Meðal hesta sem koma fram eru hinn magnaði Óskasteinn frá Íbishóli, von er á Hrannari frá Flugumýri og Arion frá Eystra-Fróðholti, A-flokks sigurvegararnir Ómur frá Kvistum og Fróði frá Staðartungu gleðja gesti og heimsmethafinn Nói frá Stóra-Hofi sýnir sig ásamt mörgum öðrum.
Heiðurshestur sýningarinnar að þessu sinni er Galsi frá Sauðárkróki.
Sýningin hefst kl. 20 og er miðaverð kr. 3.500 í forsölu, en kr. 4.000 við innganginn. Undanfarin ár hefur ávallt verið uppselt á þessa sýningu og því vissara að tryggja sér miða í tíma. Forsalan fer fram hjá N1 á Ártúnshöfða í Reykjavík, í Mosfellsbæ, Hveragerði, Selfossi og Hvolsvelli sem og í helstu hestavöruverslunum. Að venju fylgir bókin „Stóðhestar“ aðgöngumiðanum en í henni er að finna upplýsingar um tæplega þrjú hundruð stóðhesta á Íslandi, en bókin er 324 síður.
Fyrr um daginn halda Hrossaræktarsamtök Suðurlands ungfolasýningu á sama stað og hefst sköpulagsmat folanna kl. 12:30.
Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki og áhorfendur velja síðan álitlegasta folann í hverjum flokki. Efstu dómaravöldu folarnir úr hvorum flokki munu koma fram á stóðhestaveislunni um kvöldið.
Semsagt sannkölluð stóðhestaveisla í Ölfushöllinni frá morgni til kvölds á laugardaginn. Allir velkomnir!,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH