Stjörnutölt 2013
„Hið margrómaða ístölt í Skautahöllinni á Akureyri, Stjörnutölt 2013 verður haldið laugardaginn 16. mars. Nú er um að gera að mæta og sjá allra bestu ístöltara svæðisins samankomna í einni af flottari sýningum vetrarins.
Mótið hefst kl 20:00 en húsið opnar hálftíma fyrr. Um að gera að mæta snemma til að fá góð sæti, sýna sig og sjá aðra og hafa gaman í góðra vina hópi.
Stóðhestar og hryssur verða kynnt á ísnum í hléi. Nú er spurningin hvort að einhver geti toppað sýningu Magnúsar Braga frá í fyrra á Óskasteini frá Íbísihóli.
Miðaverð 2.500 kr,“ segir í tilkynningu frá nefndinni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH