Kveður með stæl-
Christina Lund hefur komið sér fyrir í Austurási hjá hjónunum Hauki Baldvinssyni og Ragnhildi Loftsdóttur, ásamt dóttur sinni og norskri tamningakonu og mun þar þjálfa hross og undirbúa sýningu Álfs síns frá Selfossi á komandi landsmóti áður en hann heldur til nýrra heimahaga í Noregi.
Það eru einmitt 11 ár síðan Christina sýndi móður Álfs, Álfadísi, á landsmóti í Reykjavík árið 2000 þá fjögurra vetra gamla. Álfadís hlaut þá eftirminnielga 8,31 í aðaleinkunn, þar af 8,66 fyrir hæfileika og varð hún í öðru sæti í sínum flokki. Eflaust verður það nokkuð áhrifamikill viðburður sjá hinn glæsilega son hennar kveðja landann á sömu braut.
Álfur varð á Landsmóti sl. sumar annar í flokki stóðhesta með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Skv. Worldfeng eru skráð afkvæmi Álfs 366 talsins, 29 þeirra hafa komið fyrir dóm og er aðaleinkunn kynbótamatsins 127.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson