Æskan á Gaddstaðaflötum við Hellu
„Vormót Æskunnar hjá Geysi verður haldið helgina 25-26. maí á Gaddstaðaflötum við Hellu. Mótið er í samstarfi við Búaðföng ehf.
Keppt verður í eftirtöldum greinum.
Börn – fjórgangur V2 – tölt T3 – tölt T7
Unglingar – fjórgangur V2 – tölt T3 – tölt T7 – fimmgangur F2
Ungmenni – fjórgangur V1 – fjórgangur V2 – tölt T1 – tölt T3 – fimmgangur F2
Unglingar – fjórgangur V2 – tölt T3 – tölt T7 – fimmgangur F2
Ungmenni – fjórgangur V1 – fjórgangur V2 – tölt T1 – tölt T3 – fimmgangur F2
Verði ekki næg skráning í einhverja flokka verða þeir sameinaðir við aðra.
Skráning er hafin og lýkur miðvikudaginn 22.maí kl 23.59. Skráning fer fram á heimasíðu Geysis hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi, skráningargjald er 2000 kr og fer greiðsla fram samhliða skráningu.
Vonumst til að hitta sem flesta, hressa og káta á Gaddstaðaflötum um næstu helgi,“ segir í tilkynningu frá nefndinni og Búaðföngum
nefndin
Búaðföng
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH