Hrossaræktarbú á HM2013 í Berlín
Sýningar hrossaræktarbúa verða eitt af stóru atriðunum á HM2013 í Berlín. Sex til átta hrossaræktarbú munu fá tækifæri til að sýna ræktunarhópa á góðum tíma í dagskránni, frá 18.30 til 20.00 föstudaginn 9. ágúst.
JENS EINARSSON:
Ljóst er að heimsmeistaramót íslenska hestsins á meginlandi þróast nú hraðbyri í átt að Landsmóti hestamanna á Íslandi. Lengst af voru mótin (í upphafi Evrópumót) eingöngu hestaíþróttamót í fullorðinsflokki með svipaðri dagskrá og Íslandsmót fullorðinna hér á landi. Síðan bættust einstaklingssýningar kynbótahrossa við og eru orðnar stór þáttur í heimsmeistaramótunum. Og nú er ísinn brotinn fyrir sýningar ræktunarbúa.
Þær eru þó ekki nýjar af nálinni á Íslandshestamótum ytra og skemmst að minnast að hrossaræktarbú sýndu hópa á WorldTölt mótinu í Óðinsvéum í Danmörku, sem haldið var í febrúar. Eitt íslenskt bú tók þátt, Blesastaðir 1a, en allmörg framúrskarandi hross frá búinu eru á meginlandinu. Fleiri íslensk hrossaræktarbú eiga hugsanlega möguleika á þátttöku á HM2013 og má þar nefna Auðsholtshjáleigu, Fet og Efri-Rauðalæk, sem öll hafa verið drjúg í sölu á framúrskarandi hrossum til útlanda.
Reglur um þátttöku hafa verið birtar á vef FEIF. Þær eru í meginatriðum svipaðar og á Landsmótum hér heima. Sex til átta hross verða í hverjum hópi en tíminn á hvert bú er þó heldur rýmri, tíu til fimmtán mínútur. Ekki er getið um sérstök úrslit eða val á besta búi. Kröfur eru gerðar um árangur í kynbótasýningum og eða hestaíþróttamótum sem telja til WorldRanking. Skráningargjald er ekkert (var 100 þúsund á LM2012) en greiða þarf fyrir hesthús og fóður. Hrossabúin og einstök hross fá kynningu í mótsskrá.
Skráningarfrestur er til 20. mars og þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar geta haft samband við Mariu Siepe-Gunkel á netfangið: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH