Spennandi lokamót á föstudagskvöld

  • 9. maí 2012
  • Fréttir
Spennandi lokamót á föstudagskvöld

Föstudagsvöldið 11. maí næstkomandi fer fram lokamót í Uppsveitadeildinni á Flúðum kl. 20.00
Keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði gegnum höllina. Ljóst er að mikil spenna verður í loftinu á föstudagskvöld, hellingur af stigum eftir í pottinum og vafalaust verður hörð barátta fram á síðustu mínútur.
Staðan fyrir tvær síðustu greinarnar er frekar jöfn bæði í einstaklings og liðakeppninni. Sólon Morthens hefur eins stigs forystu á Ásu Ljungberg í einstaklingskeppninni, fast á hæla þeirra koma svo Guðmann Unnsteinsson, María Þórarinsdóttir og Knútur Ármann.
Liðið hans Hjalla leiðir liðakeppnina með 48 stig, Lið Ástundar kemur næst með 45 stig og JÁVERK með 26,5.
Forkeppni í tölti hefst stundvíslega kl. 20.00 og hvetjum við alla til að mæta.
Aðgangseyrir er 1000 kr, frítt fyrir 16 ára og yngri
Allar nánara upplýsingar um deildina má finna inn á www.smari.is þar sem ráslistar munu einnig birtast þegar líður á vikuna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link