Skráning á Svellkaldar hafin
Skráningar fyrir Svellkaldar konur hófst í hádeginu í dag inni á www.sportfengur.com og skraning.sportfengur.com.
Aðeins 100 konur komast að svo um að gera að vera tilbúin við tölvuna. Þátttökugjaldið er kr. 10.000 og er skráningin ekki tekin gild fyrr en greiðsla liggur fyrir. Allur ágóði af mótinu rennur til styrktar landsliðinu okkar sem keppir á HM í Herning í sumar.
Svellkaldar konur er flottur viðburður sem haldin verður í Skautahöllinni í Laugardal, laugardaginn 21. mars. Aðgangseyri verða litlar 1000 krónur, frítt fyrir 12 ára og yngri, að er fram kemur í tilkynningu frá LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH