Íslandsmeistari 115. sinnum
Í sumar tók blaðamaður saman lista yfir alla þá sem hafa orðið Íslandsmeistarar í fullorðinsflokki og var sá listi birtur í Íslandsmótsblaði Spretts. Landsamband hestamanna hafði engan lista í fórum sér yfir Íslandsmeistara síðustu ára nema aftur til ársins 2008.
Listinn var ekki fullkominn þar sem ekki var hægt að finna fullnægjandi upplýsingar um öll árin en notast var við gamlar ritheimildir á borð við Hestar og menn, Morgunblaðið og auðvitað gömul Eiðfaxablöð.
Að þessu tilefni ákvað blaðamaður að spurja nokkra vel valda hestamenn hvern þeir teldu að hefði hlotið Íslandsmeistrartitil oftast og þá hversu oft en eftir að hafa tekið saman þennan lista var eitt nafn sem kom upp oftar en hvert annað nafn og það var nafn Sigurbjörns Bárðarson. Flestir voru með það að hreinu að Sigurbjörn var sá sem hafði hlotið flesta titla en eina sem var nálægt fjölda sigra var Sylvía dóttir hans en Sigurbjörn hefur orðið Íslandsmeistari 150 sinnum.
Oftast hefur hann orðið stigahæsti keppandinn eða alls 18 sinnum en hann hefur hlotið 5 Íslandsmeistaratitla í tölti, 3 í slaktaumatölti, 8 í fjórgangi, 11 í fimmgangi, 12 í gæðingaskeiði, 1 í 100m. skeiði, 12 í 150m. skeiði, 10 í 250m. skeiði, 9 í hindrunarstökki, 6 í hlýðnikeppni eða fimi, 7 í íslenskri tvíkeppni, 7 í skeiðtvíkeppni og 6 í olympískri tvígrein. Einstakt afrek og er þessi listi ekki endanlegur því eins og sagt var hér fyrir ofan fundust ekki fullnægjandi upplýsingar fyrir hvert ár og því getur Sigurbjörn státað af enn fleiri titlum.
Hver hefur orðið oftast Íslandsmeistari og hversu oft hefur hann/hún orðið það?
Edda Rún Guðmundsdóttir
Ég myndi segja Sigurbjörn Bárðarson og 45 titlar
Dagmar Öder Einarsdóttir
Ég giska á Sigurbjörn Bárðarson og 32 titla
Valdís Björk Guðmundsdóttir
Sigurbjörn Bárðarson og örugglega svona 35 sinnum.
Helga Una Björnsdóttir
Held það sé Sigurbjörn Bárðarson og eflaust 40 sinnum.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Klárlega Sigurbjörn Bárðarson og mig grunar að titlarnir séu einhvers staðar í kringum 100!
Arnór Dan Kristinsson
Sigurbjörn Bárðarson og 58 sinnum
Óðinn Örn Jóhannsson
Örugglega Sigurbjörn Bárðarson og 55 sinnum
Játvarður Jökull Ingvarsson
Hinrik Bragason og ég giska á að það sé 15 sinnum.
Óskar Nikulásson
Finnst Sigurbjörn Bárðarson hafa unnið allt en ég held að það sé Sigurður Sigurðarson og hann hafi orðið 15 sinnum.
Ævar Örn Guðjónsson
Það er Sigurbjörn Bárðarson og ég giska á 53 sinnum
Guðmundur Björgvinsson
Sigurbjörn Bárðarson og 30 sinnum
Eyrún Ýr Pálsdóttir
Sigurbjörn Bárðason og segjum 67
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH