Opið hús í Torfunesi
Laugardaginn 13. október verður opið hús í Torfunesi milli 13 og 17. Kynnt verður starfsemi búsins og einnig folöld og tryppi sem og söluhross. Fólki mun gefast kostur á að skoða bæði aðstöðuna á staðnum sem og þau hross sem inni verða. Þórdís Anna Gylfadóttir verður á staðnum og mun kynna námskeið sem hún hefur hug á að vera með núna fyrir áramót sem meðal annars eru knapamerki 1 og 2,stöðupróf á þeim og einnig ýmis önnur námskeið. Að lokum mun Mette Mannseth vera á staðnum og loka þessu opna húsi hjá okkur með sýnikennslu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH