Framleiðir tréspæni í Hveragerði

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ný vistvæn spónaverksmiðja

Í Hveragerði er nú kominn á góðan skrið spónaverksmiðja með sex þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Hráefnið er trjákurl frá Gámaþjónustunni, sem er afurð unnin úr afsettu timri. Fram til þessa hefur kurlið verið urðað en nú stefnir í að það verði allt nýtt í innlendan iðnað, undirburð undir hross og annan búpening.

Um er að ræða endurvinnslu á hráefni sem hingað til hefur verið urðað. Nýtingin á hráefninu er 100% og úr verður ný og nýtanleg vara. Trékurlið er þurrkað með jarðgufu frá hitaveitu Ölufss. Framleiðslan er alfarið innlend og því gjaldeyrissparandi.  Nú starfa fimm manns í fyrirtækinu og verða átt til níu eftir áramótin. Stefnt er að því að framleiða þrjú til fjögur þúsund tonn af undirburði á næsta ári.

Fyrirtækið sem rekur spónaverksmiðjuna heitir Fengur ehf.. Stofnandi fyrirtækisins er Sigurður Halldórsson, hestamaður og athafnamaður í Garðabæ. Hann á einnig og rekur hugbúnaðar- og vefsíðufyrirtækið Netvistun.

Fjallað er um spónaverksmiðjuna í Hestum og hestamönnum, sem kemur út í dag. Hægt er gerast áskrifandi í síma 511-6622 eða með því að smella HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link