Niðurstöður B-úrslita í tölti
Nokkur spenna var í B-úrslitum töltkeppna á Reykjavíkurmeistarmótinu og horfir í hörkubaráttu á morgun þegar sigurvegarar þeirra mæta til leiks í A-úrslitum á morgun.
Hrefna Hallgrímsdóttir og Penni frá Sólheimum eru greinilega í miklu stuði í dag en hún vann sig upp úr ellefta sæti í það fimmta þegar hún sigraði B-úrslit í töltkeppni 2. flokks. Hún sigraði einnig B-úrslit í fjórgangskeppni sama flokks fyrr í dag.
Kári Steinsson fór mikinn á Tón frá Melkoti og sigraði B-úrslit ungmennaflokks nokkuð örugglega. Hart var barist bæði í barna- og unglingaflokki og var þar mjótt á munum þegar Védís Huld Sigurðarsdóttir og Konráð Valur Sveinsson sigruðu sína flokka.
Vigdís Matthíasdóttir vann sig hægt og örugglega upp úr 10 sæti í A-úrslit í 1. flokki og Berglind Ragnarsdóttir sigraði í Meistaraflokki með glæsibrag.
Meðfylgjandi eru úrslit.
Meistaraflokkur
1. Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 7,72
2. Sigurbjörn Bárðarson / Jarl frá Mið-Fossum 7,61
3. Erla Guðný Gylfadóttir / Erpir frá Mið-Fossum 7,39
4. Bylgja Gauksdóttir / Grýta frá Garðabæ 7,33
5. Högni Sturluson / Ýmir frá Ármúla 7,11
6. John Sigurjónsson / Dáti frá Hrappsstöðum 4,5
1. flokkur
1 Vigdís Matthíasdóttir / Stígur frá Halldórsstöðum 7.22
2 Sigurbjörn Viktorsson / Stjarna frá Stóra-Hofi 7.11
3 Jón Páll Sveinsson / Seifur frá Baldurshaga 6.94
4-5 Hallgrímur Birkisson / Svali frá Feti 6.83
4-5 Sigurbjörn Bárðarson / Katrín frá Vogsósum 2 6.83
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Bragur frá Seljabrekku 6.56
2. flokkur
1 Hrefna Hallgrímsdóttir / Penni frá Sólheimum 6.28
2 Petra Björk Mogensen / Kelda frá Laugavöllum 6.22
3 Arnar Ingi Lúðvíksson / Eir frá Búðardal 6.06
4 Brynja Viðarsdóttir / Kolbakur frá Hólshúsum 5.94
5 Kristín Ingólfsdóttir / Sjarmur frá Heiðarseli 5.83
Ungmennaflokkur
1 Kári Steinsson / Tónn frá Melkoti 7.33
2 Lilja Ósk Alexandersdóttir / Ormur frá Sigmundarstöðum 6.67
3 Birgitta Bjarnadóttir / Blika frá Hjallanesi 1 6.61
4 Lárus Sindri Lárusson / Þokkadís frá Efra-Seli 6.5
5 Edda Rún Guðmundsdóttir / Gljúfri frá Bergi 6.22
6 Sarah Höegh / Stund frá Auðsholtshjáleigu 6.06
Unglingaflokkur
1 Konráð Valur Sveinsson / Hringur frá Húsey 7
2 Glódís Helgadóttir / Geisli frá Möðrufelli 6.44
3-4 Nína María Hauksdóttir / Kolfinna frá Efri-Rauðalæk 6.22
3-4 Harpa Sigríður Bjarnadóttir / Sváfnir frá Miðsitju 6.22
5 Konráð Axel Gylfason / Smellur frá Leysingjastöðum 6
Barnaflokkur
1 Védís Huld Sigurðardóttir / Flóki frá Þverá, Skíðadal 5.83
2 Maríanna Sól Hauksdóttir / Þór frá Þúfu í Landeyjum 5.22
3 Jóhanna Guðmundsdóttir / Ásdís frá Tjarnarlandi 4.78
4 Ásta Margrét Jónsdóttir / Strengur frá Hrafnkelsstöðum 1 4.72
5 Arnar Máni Sigurjónsson / Draumur frá Hjallanesi 1 3.11
Styttu haustið með EiðfaxaTV