Ræktunarbú ársins 2018

  • 15. október 2018
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Tólf bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins.

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 49 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2018 sem haldin verður í Spretti, Samskipahöllinni, laugardaginn 27. október næstkomandi og byrjar kl. 13:00. Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum um kvöldið.

Í stafrófsröð eru tilnefnd bú: 

Berg, Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson

Fet, Karl Wernersson

Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius

Hamarsey, Hannes Sigurjónsson og Inga Cristina Campos

Íbishóll, Elisabeth Jansen og Magnús B. Magnússon

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble

Steinnes, Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir og fjölskylda

Steinsholt, Jakob S. Sigurðsson og Sigurður G. Sigurðsson

Stóra-Vatnsskarð, Benedikt G. Benediktsson

Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson

Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson

Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Fagráð í hrossarækt óskar tilnefndum búum innilega til hamingju með frábæran árangur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link