Járningardagur

  • 13. janúar 2016
  • Fréttir
Baldvin og Þorvaldur og Mustad bjóða alla áhugamenn um járningar og hófhirðu velkomna.

Laugardaginn 16.janúar n.k. kl 14:00 -17:00 verður haldin járningardagur að Kjarri í Ölfusi. Allir áhugamenn um  járningar og hófhirðu eru boðnir velkomnir.

Kristján Elvar Gíslason Járningarmeistari mentaður frá dýrlæknaháskólanum í Hannover sýnir heitjárningar, notkun á Vettec viðgerðar og fylliefnum og gefur góð ráð um sjúkrajárningar.

Íslandsmeistarinn í járningum  Leó Hauksson sýnir járningar og svarar spurningum.

Baldvin og Þorvaldur verður með tilboð á Mustad verkfærum og Vettec fylliefnum daganan 14.-23. Janúar.

Veitingar í boði.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link