Hestamennska á rangri leið
Gunnar Steinn Pálsson fór á kostum í erindi sínu á LH þingi. Þingfulltrúar skemmtu sér konunglega. Erindið var þó hlaðið alvarlegum athugasemdum. Gunnar Steinn segir að hestamenn séu í vörn og timburmönnum eftir góðærið og að hér ríki stöðnun. Hestamennskan á Íslandi sé ríkra manna sport og lokaður heimur sem erfitt sé að komast inn í. Ræktunartakmarkið séu stjörnuhestar sem ætlað er að slá í gegn, en venjulegt fólk geti ekki riðið á. Hann segir nauðsynlegt að hestamenn breyti hugarfari sínu hver til annars og gangi í takt. Bera verði meiri virðingu fyrir þörfum hins almenna hestamanns og þeim sem eru að byrja í hestamennsku. Að lokum lagði hann áherslu á að ekki sé hægt að hafa tvo eða fleiri hljómsveitarstjóra í einni hljómsveit ef meðlimirnir ætli að spila sama lagið.
Styttu haustið með EiðfaxaTV