Fyrirlestur um tannheilbrigði

  • 10. febrúar 2016
  • Fréttir
Opinn fyrirlestur á Melgerðismelum um tannheilbrigði íslenskra hrossa.

„Sonja Lindal Þórisdóttir frá Lækjamóti, dýralæknir, reiðkennari og tamningamaður mun vera með erindi um tannheilbrigði íslenskra hrossa í Funaborg, félagsheimili hestamannafélagsins Funa á Melgerðismelu, föstudaginn 12. febrúar klukkan 20.00. Efni fyrirlestrarins var viðfangsefni í lokaverkefni Sonju í dýralæknanáminu og spannar hennar starfsvið að stórum hluta í dag. Mikil umræða hefur verið um tannheilbrigði, tannröspun og munnáverka á síðustu árum og hvetjum við alla áhugasama til að mæta og kynna sér málið frá hlið dýralæknis, tamningamanns og reiðkennara. Aðgangseyrir er 500 krónur – allir velkomnir“

Fræðslunefnd Funa
www.funamenn.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link