Breytingar hjá Eiðfaxa-
Þær breytingar urðu hjá okkur á Eiðfaxa nú um áramótin að Trausti Þór Guðmundsson, ritstjóri blaðsins síðastliðin 5 ár, lét af störfum. Við þökkum Trausta hans störf fyrir Eiðfaxa, kveðjum hann með söknuði og óskum honum góðs gengis í framtíðinni.
Það sem við tekur varðandi útgáfu blaðsins er ritnefnd.
Ritnefnd Eiðfaxa skipa:
- Telma Tómasson, fréttamaður, tamningamaður frá Hólaskóla, formaður nefndarinnar
- Anton Páll Níelsson, reiðkennari
- Gígja Dögg Einarsdóttir, ljósmyndari, tamningamaður frá Hólaskóla
- Guðrún Hulda Pálsdóttir, blaðamaður og starfsmaður Eiðfaxa
- Þorvaldur Kristjánsson, kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands
Eftir sem áður mun fjöldi fólks koma að greinaskrifum í blaðið og áfram verður leitað til sérfróðra. Markmiðið er alltaf að gera gott blað betra og eru ábendingar lesenda þar um vel þegnar.
Hægt er að koma ábendingum til ritnefndar á póstfangið [email protected].
Ólafur H. Einarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson