Uppskeruhátíð Geysis

  • 24. nóvember 2015
  • Fréttir
Knapi ársins Guðmundur Björgvinsson

Uppskeruhátíð Geysis fór fram 21.nóv 2015 í Hvolnum Hvolsvelli. Góð mæting var og mikil stemmning. Viljum við byrja á að þakka öllum sjálfboðaliðunum sem hjálpuðu okkur á árinu til að halda félgasmálum Geysis í þessum fulla krafti sem raun ber vitni. Gríðalega öflugt starf er innan félagsins. Þökkum við kærlega fyrir frábærar veislukræsingar sem voru eldaðar og bornar fram af kvennakórnum Ljósbrá, takk fyrir okkur. Mikið var dansað og allir skemmtu sér vel. Fjöldi manns var mættur og veislustjórinn Erlendur Árnason stóð sig frábærlega. Hér er meðfylgjandi listi yfir á sem hlutu bikara og viðurkenningar á hátíðinni. Til hamingju öll og einnig allir þeir sem voru tilnefndir með frábæran árangur á árinu. Nú tekur við undirbúningur að komandi starfsári og jólafrí. Svo byrjar ballið aftur með uppskeruhátíð Æskunnar sem haldin verður um miðjan janúar 2016.

Knapi ársins

Guðmundur Björgvinsson ásamt frábærum árangri á Hrímnir í íþróttakeppni á árinu sem endaði með heimsmeistartitli í fjórgangi á HM í Herning í sumar, tók hann þátt í fjölmörgum gæðingakeppnum og var í toppbaráttu í þeim öllum. Einnig sýndi hann efstu 6.vetra merina á heimsvísu hana Garúnu frá Árbæ. Fjölhæfur knapi með frábæran árangur á öllum sviðum.

Mjölnisbikarinn (hæðsta einkunn í tölt forkeppni á árinu)

Sigurður Sigurðarson á Örnu frá Skipaskaga 8,20

 

Gæðingabikarinn

Sigurður Sigurðarson tók þátt í fjölda gæðingmóta og var ávallt í úrslitum á þeim mótum sem hann tók þátt í. Helst má þar nefna frábæran árangur á Dreyra frá Hjaltastöðum en hann sigraði Gæðingamót Geysis á honum með einkunnina 8,86

 

Íþróttabikarinn

Guðmundur Björgvinsson átti stórkostlegan feril á árinu. Er þá aðallega árangur Guðmundar og Hrímnis frá Ósi. Urðu þeir íslandsmeistara í fjórgangi, sigruðu WR íþróttamót sleipnis, einnig WR íþróttamót spretts og enduðu svo sumarið  með heimsmeistaratitli í fjórgangi á HM í Herning í sumar.

 

Skeiðskálin

Davíð Jónsson tók þátt í 14 skeiðkappreiðum i sumar með góðum árangri og helst er að nefna Irpu frá Borgarnesi, sigruðu þau meðal annars 100 á skeiðleikum nr 2, 100m á íþróttamóti Harðar, svo náðu þau þriðja besta tíma ársins yfir landið í 100m skeið á gæðingamóti Geysis sem dugði þeim til sigurs.

 

Viðurkenningar

Kynbótahross ræktuð af félgasmönnum Geysis fengu öll viðurkenningarskjöld.

4-vetra Hryssa (efst á landsvísu, önnur á heimsvísu)

Þökk frá Árbæjarhjáleigu

Sköpulag: 8,24 (9,5 fyrir háls, bak og lend, samræmi) – ( alla aðra þætti byggingar 8,00)

Hæfileikar: 8,29 ( 9,0 fyrir tölt, 8,5 brokk,vilja og geðslag, fregurð í reið, hægt tölt, hægt stökk)

Aðaleinkunn: 8,27

 

4-vetra stóðhestur (3 á landsvísu, 4 á heimsvísu)

Vökull frá Leirubakka

Sköpulag: 8,22 ( 8,5 fyrir háls, samræmi, fótagerð) (flesta aðra þætti byggingar 8,00)

Hæfileikar: 8,27 (8,5 fyrir tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt tölt) (7,5 fyrir skeið)

Aðaleinkunn: 8,25

 

5 vetra hryssa (tvær jafnar og báðar í topp 30)

Ólína frá Skeiðvöllum

Sköpulag: 8,24 (8,5 fyrir háls, samræmi, hófa)(8 fyrir höfuð, bak og lend, fótagerð)

Hæfileikar:  8,26 Klárhryssa (9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag, fegurð í reið) (8,5 fyrir stökk, fet, hægt tölt)

Aðaleinkunn: 8,25

 

Snörp frá Hestheimum

Sköpulag: 8,14 (8,5 fyrir háls, samræmi, réttleika) (8,0 fyrir fótagerð og hófa)

Hæfileikar: 8,32 ( 9,0 fyrir vilja og geðslag) (8,5 fyrir tölt, fegurð í reið) (8,0 fyrir brokk, skeið, fet, hægt tölt)

Aðaleinkunn: 8,25

 

5 vetra stóðhestur(sýndur erlendis) ( 2 á heimsvísu)

Starri frá Herríðarhóli

Sköpulag: 8,18 (8,5 fyrir háls, bak og lend, samræmi, hófa) (8,0 fyrir réttleika, prúðleika)

Hæfileikar: 8,88 (9,5 fyrir vilja og geðslag) ( 9,0 fyrir tölt, skeið, fegurð í reið) ( 8,5 fyrir brokk og stökk, hægt tölt)

Aðaleinkunn 8,60

 

6 vetra hryssa (efst á heimsvísu)

Garún frá Árbæ (stóð efst í 6 vetra flokki á Heimsmeistaramótinu  í Herning Danmörku í sumar)

Sköpulag: 8,55 (9,0 fyrir háls, samræmi) ( 8,5 fyrir höfuð, bak og lend, hófa) ( 8,0 fyrir fótagerð og prúðleika)

Hæfileikar: 8,66 (9,0 fyrir skeið, vilja og geðslag) ( 8,5 fyrir tölt, brokk, stökk, fegurð í reið, fet, hægt tölt)

Aðaleinkunn 8,62

 

6 vetra stóðhestur (8 á heimsvísu, 2 á landsvísu)

Stekkur frá Skák

Sköpulag: 8,29 (8,5 fyrir höfuð, háls, samræmi, fótagerð) ( 8,0 fyrir bak og lend, hófar, prúðleiki)

Hæfileikar: 8,71 ( 9,5 fyrir fet) ( 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk) ( 8,5 fyrir vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt tölt, hægt stökk) (8,0 fyrir skeið)

Aðaleinkunn: 8,54

 

7 vetra hryssa (9 á heimsvísu, 7 á landsvísu)

Laufey frá Standarhjáleigu

Sköpulag: 8,09 ( 9,0 fyrir bak og lend) (8,5 fyrir samræmi) ( 8,0 fyrir höfuð, hálsm fótagerð, réttleika, prúðleika)

Hæfileikar: 8,80 (9,5 fyrir skeið) (9,0 fyrir tölt, vilji og geðslag, hægt tölt) (8,5 fyrir brokk, fegurð í reið)(8,0 fyrir stökk, fet, hægt stökk)

Aðaleinkunn 8,52

 

7 vetra stóðhestur (7 á heimsvísu, 2 á landsvísu á eftir Glóðfeykir sem er farin úr landi)

Nói frá Stóra-Hofi

Sköpulag: 8,61 (9,0 fyrir háls, fótagerð, prúðleika) ( 8,5 fyrir höfuð, bak og lend, samræmi, hófar)

Hæfileikar: 8,70 (9,5 fyrir skeið) ( 9 fyrir vilja og geðslag) ( 8,5 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, fet)(8,0 fyrir stökk, hægt tölt)

Aðaleinkunn: 8,67

 

Farandbikarar fyrir hæðstu kynbótahross af hvoru kyni, ræktuð og í eigu Geysisfélaga

Kynbótamerin Laufey frá Strandarhjáleiu

Kynbótahesturinn Nói frá Stóra-hofi

 

Ræktunarbikarinn kynbótabú

Ræktunarbúið Miðás

5 hross sýnd á árinu.

aldur 6,2 ár 

Aðaleinkun 8.17

Á topp 10 yfir landið 

Óskahringur 8.45

og Ópall frá miðási 8,30 efnilegur 5 vetra foli þar á ferðini 

flottur árangur hjá búi sem er að fá 3 til 5 folöld á ári.

Platína Miðási 8,16

Píla Miðási 8,02

Kveikja Miðási 7,91

 

Keppnishestabúsbikarinn

Árbæjarhjáleiga II

Íslandsmeistartitlar í 100m skeiði og  gæðingaskeið ungmenna Kjarkur frá Árbæjarhjáleiga II á næst besta tíman í 100m á landsvísu, Íslandsmeistaratitill í fjórgangi unglinga Krás frá Árbæjarhjáleigu II, Jarl frá Árbæjarhjáleigu II staðið sig vel og vann Reykjavíkurmeistarmótið opinn flokk 1 og fór í  7,07 í einkunn í úrslitum.

 

 

Íslandsmeistaraskjöldur

Róbert Bergmann á Smið frá Hólum í tölti ungmenna

 

Íslandsmeistaraskjöldur

Guðmundur Björgvinsson á Hrímnir frá Ósi í fjórgangi

 

4 Geysisknapar fóru á Heimsleika

Guðmundur  Björgvinsson á Hrímnir frá Ósi í fjórgang

Guðmunda Ellen Sigurðardóttir á Týr frá Skálatjörn

 

Sigurður Sigurðarson og Róbert Bergmann sem varaknapar

 

Bæði Guðmundur og Guðmunda Ellen komust í úrslit í sínum greinum.

Guðmunda Ellen endaði 3 í fjórgangi ungmenna.

Guðmundur Björgvinsson varð heimsmeistari í fjórgangi.

 

Vel unnin störf fyrir Geysir

Jóhann G. Jóhannesson. Búinn að vinna mikið á mótum í allt sumar og fleiri viðburðum félagsins, ávalt tilbúinn að hjálpa til þegar þörf krefst.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link