„Sá hana fyrst á rugguhesti“
Dagmar Öder Einarsdótttir og Valdís Björk Guðmundsdóttir kepptu báðar í B-úrslitum í unglingaflokki í dag. Þær stóðu sig báðar vel, Dagmar Öder lenti í 8. sæti og tryggði sér pláss í A-úrslitunum en Valdís lenti í því níunda. Eiðfaxi tók þær tali:
Dagmar og Valdís eru æskuvinkonur og langaði blaðamanni því að athuga hvort aldrei myndaðist nein spenna á milli þeirra þegar þær eru að keppa saman. “Það eru aldrei nein leiðindi. Það er svo gaman að keppa og við samgleðjumst alltaf hvor annari,” segir Valdsí Björk glöð í bragði.
Það kemur kannski ekki á óvart að Dagmar og Valdís kynntust gegnum sameiginlega áhuga sinn á hestamennskunni. “Við erum búnar að þekkjast síðan við vorum pínulitlar. Ég hitti fyrst Völlu heima hjá henni, fór í heimsókn þangað en mömmur okkar eru vinkonur. Valla var að rugga sér á rugguhesti og við fórum að spjalla saman. Við höfum verið vinkonur síðan,” segir Dagmar Öder. Aðspurðar að því hver væri besti hesturinn á mótinu voru þær sammála um að það væri hann Hrímnir frá Ósi “Við heilluðumst alveg að honum, hann er svo sjarmerandi,” segir Valdís. “En auðvitað held ég með pabba mínum. Hann er mitt uppáhald” bætir Dagmar við og á þar að sjálfsögðu við Einar Öder Magnússon sem keppir í B-flokki gæðinga á Glóðafeyki frá Halakoti.
Innt eftir því hvort hún ætli sér alla leið í úrslitunum á laugardaginn segir Dagmar: “Auðvita fer ég með það hugarfar að reyna vinna en fyrst og fremst ætla ég að hafa gaman.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH