Unghrossasýning á laugardag

  • 25. janúar 2012
  • Fréttir
Unghrossasýning á laugardag

Folalda- og ungfolasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Melaskjóli, Melgerðismelum, laugardaginn 28. janúar nk.

 
„Hrossin verða sköpulagsskoðuð frá kl. 10 og hlaupaæfingar hefjast kl. 13. Eyþór Einarsson mun stýra dómshaldi. Skráningar berist til Þorsteins á Grund um tölvupóst í netfangið [email protected] fyrir lok fimmtudagsins 26. janúar. Skrá þarf nafn og fæðingarnúmer hrossa ásamt símfangi umráðamanns,“ segir í tilkynningu stjórn Náttfara.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link