Gæðingarmót í Herði
Gæðingamót Harðar fer fram dagana 5. júní – 7. júní.
„Mótið er gæðingakeppni Harðar og því eingöngu fyrir skuldlausa Harðarfélaga. Tölt og skeið er opið fyrir alla.
Skráning fer fram á Sportfeng. Skráning hefst miðvikudaginn 27.maí og lýkur mánudaginn 1. júní. á miðnætti. Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 3500 en fyrir börn og unglinga kr 3000. Skráningargjald fyrir tölt og skeiðgreinar er kr 3.000.
Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk, C flokk og pollar verða að tilkynna það með því að senda póst á [email protected]
Boðir verður upp á eftirfarandi flokka:
- A-flokk gæðinga
- A-flokk gæðinga áhugamenn
- B-flokk gæðinga
- B- flokk gæðinga áhugamenn
- C- flokk gæðinga (ef næg þátttaka næst)
- Ungmenni
- Unglingar
- Börn
- Tölt opin flokkur
- Tölt áhugamenn
- Tölt T7 börn og unglingar
- Tölt 17 ára og yngri
- Skeið 100m, 150m, 250m
- Pollar teymdir og pollar ríða einir – senda skráningu á [email protected].
- Unghrossakeppni – skráning fer fram á sprotfeng undir: annað
Einnig hvetjum við fólk til að skrá sig í flokka miða við keppnisreynslu hvers og eins. Mótanefnd áskilur sér þann rétt að fella niður flokka ef ekki næst næg þátttaka,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Herði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH