Lítil en athyglisverð verðlaunaræktun
Félagarnir Haukur Sigfúrsson og Þorvar Þorsteinsson hafa náð góðum árangri í hrossarækt sem þeir standa fyrir í nafni Ytri-Bægisár í Hörgárdal. Ræktunin er ekki stór í sniðum en nokkur athyglisverð hross hafa komið frá búinu á undanförnum árum og var það meðal annars valið ræktunarbú Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga árið 2011. Auk þess hefur Þorvar getið sér gott orð norðan heiða sem tamningamaður og sýnandi.
Hæst dæmda hross sem frá búinu hefur komið er stóðhesturinn Stáli undan Gusti frá Hóli og stofnhryssu ræktunarinnar, Nótt frá Akureyri, sem er undan Sörla frá Sauðárkróki. Stáli og Þorvar stóðu sig með prýði í forkeppni A-flokks gæðinga og tryggðu sér sæti í milliriðlum.
Haukur og Þorvar eru í ræktendaviðtali í nýjasta tölublaði Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH