Íslenski hesturinn og fólk með fötlun
Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun laugardag 11.febrúar kl. 10.00 – 16.00.
Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun. Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun. Markhópur ráðstefnu eru þeir sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa.
Dagskrá:
10.00 – 12.00 Félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ
10.00 – 10.15 Kynning á verkefnum starfshóps um þessi mál og dagskrá námskeiðs: Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF
10.15. – 10.35. Kynning á sjúkraþjálfun á hestbaki: Guðbjörg Eggertsdóttir og Þorbjörg Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfarar Æfingastöðvar SLF
10.35. – 11.00. Kynning á starfi fyrir fatlaða innan Hestamannafélagsins Harðar
Auður Sigurðardóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra: Kynning á leiðtoganámskeiðum
Þórhildur Þórhallsdóttir, Hestamennt
11.00 – 11.20. Kynning á knapamerkjakerfi: Sigrún Sigurðardóttir, reiðkennari
11.20. –11.40. Kynning á hlutverki hestsins & félagslegur þáttur: Ásta Pétursdóttir, geðhjúkrunarfræðingur
11.40. – 12.00. Spurningar og umræður
12.00 – 13.00 Hádegisverður
13.00 – 15.00 Reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ
Sjúkraþjálfun á hestbaki Stutt kynning
Kynning á keppnisfyrirkomulagi Helstu atriði kynnt
15.00 – 16.00 Lok námskeiðs og samantekt
Þátttökugjald er kr. 3.000. –
Innifalið er hádegisverður og kaffi.
Vinsamlega staðfestið skráningu fyrir þriðjudag 7 febrúar 2012 í netfang;
[email protected] Íþróttasamband fatlaðra
[email protected] Hestamannafélagið Hörður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson