Dagur frá Strandarhöfði föðurlaus
Stóðhesturinn og keppnishesturinn Dagur frá Strandarhöfði er ekki undan Baldri frá Bakka samkvæmt DNA rannsókn. Stefán Friðgeirsson á Dalvík, einn eigenda hestsins, staðfestir þetta. Hann segir að sýni hafi verið tekið úr Degi árið 2007, en svar hafi ekki borist fyrr en fyrir nokkrum dögum síðan, eftir að þrýst hafi verið á um það.
Í niðurstöðu rannsóknarinnar segir að Dagur sé ekki undan Baldri en sé líklega skyldur honum. Ræktandi Dags er Albert Jónsson og örmerkti hann einnig hestinn fjögra vetra gamlan. Stefán segir að fyrir hann persónulega skipti þetta ekki miklu máli. Hesturinn sé orðinn sextán vetra og hafi í raun gengið sitt skeið sem stóðhestur. Það sé hins vegar skaði og vonbrigði fyrir þá sem hafi leitt undir hestinn vegna þess að hann var sagður sonur Baldurs. Nú eigi afkvæmin föðurlausan föður, sem sé afleitt í hrossarækt.
Stefán segir að hugsanlega verði tekið annað sýni til að ganga endanlega úr skugga um hvort þetta sé rétt, en dæmi eru um að endurtekið sýni hafi gefið aðra niðurstöðu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári