Af sama meiði

  • 6. október 2012
  • Fréttir
Af sama meiði

Mikil stemning var í Rangárþingi-ytra í dag þegar heimilisfólkið í Eystra-Fróðholti opnaði bú sitt fyrir gestum. Hross á öllum aldri var smalað heim og nokkurs konar réttir haldnar. Boðið varupp á súpu og hross úr ræktuninni sýnd en hún er orðin velkunnug fyrir að gefa af sér úrvalshross. Ársæll Jónsson ræktandi er einmitt í stórviðtali í 6. tbl. Eiðfaxa. Hann hefur verið óhræddur við að skyldleikarækta út frá Ófeigi frá Flugumýri. Hann segir þar m.a.:

„Ég hef haldið mig nærri Ófeigi og það hefur reynst mér best að skyldleikarækta út frá honum. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að ég er að festa inni ákveðna eiginleika en það hefur gengið vel fram til þessa. Svo ef sá dagur kemur að halla fer undan fæti þá verða þeir gripir ekki settir á og málið endurskoðað. Það er jú hluti af því að vera í ræktun að skera frá það sem ekki er gott, skiptir þá engu hvort það er undan dýrustu hrossunum eða ekki,“ segir Ársæll hugsi, hallar sér aftur í eldhússtólnum og lagar til augabrúnirnar í sífellu. En bætir við: „Af hverju að breyta út frá því sem vel hefur gengið?“

 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link