Forsala framlengd
Forsala aðgöngumiða á Landsmót verður til 15. maí og hefur verið framlengd um tvær vikur. Enn er því hægt að tryggja sér miða á verulegum afslætti. Truflanir hafa verið í uppfærslu á gagnagrunni netmiðasölukerfis Landsmóts síðasta sólarhring og biðst Landsmót velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur haft í för með sér. Unnið er hörðum höndum við að lagfæra kerfið og að sögn tæknimanna ætti það að vera komið í gang með kvöldinu.
Vakin er athygli á vildarkjörum til LH og BÍ félaga.
Þess má geta að hafi kvittun fyrir kaupum ekki borist á tölvupósti til kaupenda, þá hefur salan ekki farið í gegn.
Nánari upplýsingar gefa starfsmenn Landsmóts á netfanginu: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH