Kristín hafði sigur
WR mótinu á Selfossi lauk rétt í þessu með úrslitum í tölti T1, en þar hafði Kristín Lárusdóttir eftir að hafa verið jöfn Janusi Eiríkssyni en sætaröðun dómara réði úrslitum.
Mót þetta er það stærsta sem haldið hefur verið á mótssvæði Sleipnis á Selfossi og framkvæmd þess tókst í alla staði mjög vel. Í mótslok hélt Magnús Ólason formaður félagsins tölu þar sem hann þakkaði öllum starfsmönnum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum.
Úrslit töltkeppni dagsins eru eftirfarandi:
A-Úrslit í Tölti Meistaraflokk
1 Kristín Lárusdóttir / Þokki frá Efstu-Grund 7,94
2 Janus Halldór Eiríksson / Barði frá Laugabökkum 7,94
3 Bergur Jónsson / Katla frá Ketilsstöðum 7,83
4 Jóhann Kristinn Ragnarsson / Kvika frá Leirubakka 7,78
5 Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 0,00
Kristín Lárusdóttir sigraði við sætaröðun dómara.
A-Úrslit í Tölti Ungmenna
1 Eggert Helgason / Stúfur frá Kjarri 7,44
2 Fríða Hansen / Hekla frá Leirubakka 7,17
3 Hrafnhildur Magnúsdóttir / Eyvör frá Blesastöðum 1A 6,61
4 – 5 Birgitta Bjarnadóttir / Þytur frá Gegnishólaparti 6,50
4 – 5 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Fróði frá Akureyri 6,50
6 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Ari frá Síðu 5,72
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH