Hrefnubörn í heimsklasa
Hrefna frá Vatnsholti vakti fyrst athygli almennings á Landsmóti 1998 þegar hún varð þriðja í elsta flokki hryssna með 8,23 í aðaleinkunn og þar af 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Hún var einnig í verðlaunasæti á LM1994 í 5 vetra flokki en á milli þessara móta átti hún tvö afkvæmi og er annað þeirra 1. verðlauna dóttir Gusts frá Grund sem Hekla heitir. Hrefna hefur á seinni árum skipað sér í sess með bestu mæðrum keppnishrossa en á síðasta heimsmeistaramóti voru tvö af afkvæmum hennar á meðal þeirra bestu í sinni grein.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands