Hver er elsti hestur Íslands?

  • 19. mars 2013
  • Fréttir
Hver er elsti hestur Íslands?

Íslenski hesturinn er þekktur fyrir langlífi og er það eitt af einkennum stofnsins.  Heyrst hefur af nokkrum íslenskum hestum erlendis sem náð hafa mjög háum aldri.  Elstur þeirra var brúnn geldingur að nafni Lille Svend, sem var sagður hafa verið 59 vetra árið 1939. 

Í Alþýðublaðinu sama ár segir „Menn rekur ugglaust minni til þess að nýlega var, í útvarpsfrétt, getið um fimmtíu og níu ára gamlan íslenzkan hest í Danmörku. Nýlega hefir Lárus Salómonsson lögregluþjónn fengið bréf frá Gunnari aflraunakappa, bróður sínum, þar sem skýrt er frá þessum hesti. Hesturinn er kallaður Lille Svend og hefir Hans Kær átt hann í 13 ár. Kveðst hann ekki hafa í hyggju að slátra Lille Svend fyrst um sinn, því að hann vinni fyrir sér ennþá og sé í fullu fjöri, aðeins orðinn ofurlítið slappur í hnjáliðunum. Lille Svend kom til Moldrupssogn árið 1908 og var þá sagður 28 vetra gamall.“

Annað hross sem náði mjög háum aldri var merin Tulle, fædd í Danmörku sem féll 57 vetra að aldri árið 1954. „Tulle og ég höfum verið vinir í 34 ár og nú fögnum við 55 ára afmæli hennar.“ sagði Andreas Larsen eggsali og eigandi Tulle árið 1952. „ Hún var 21 árs þegar ég fékk hana og 28 ár til viðbótar dró hún litla kerru fulla af eggjum á milli bæja.  Síðasta ár dró hún kerruna til kaupmannahafnar um 40 km leið þá 45 vetra  að aldri.“  Andreas veiktist svo og lést á undan Tulle,  sögur segja að hún hafi saknað eiganda síns og félaga svo mikið að hún hætti að fóðrast og var að lokum felld.

Einnig má nefna gráa geldinginn Donald sem var fluttur út til Skotlands tvævetur.  Hann var enn í fullu fjöri og notaður til léttra vinnuverka 43 vetra, og hafði þá búið með sömu fjölskyldunni í bænum Maybole í 41 ár. 

Það má með sanni segja að þessir hestar hafi lifað tímana tvenna og orðið órjúfanlegur partur af  fjölskyldu eigenda sinna.  Gaman væri að heyra sögur eða fréttir af öldnum höfðingjum hér á landi. Hver ætli sé elstur hesta á Íslandi núna?  

Lesendur mega endilega senda ábendingar um hugsanlega kandítdata á [email protected]

Heimildir:

Iceryder

Alþýðublaðið

Icelandic Horse History

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link