Heimslistinn í 250 metra skeiði
Nú er flestum þeim alþjóða mótum (e. world ranking) lokið sem fyrirhuguð voru í aðdraganda heimsmeistaramóts. Flestar þær þjóðir sem tilkynnt hafa um þátttöku á HM í Berlín hafa gefið það út hvaða hross og knapar mæta til leiks fyrir þeirra hönd.
Heimslistinn (e.world ranking) er því orðinn mjög marktækur og lýsandi fyrir árangur knapa undanfarinn tvö ár. Stöðulistinn er reiknaður út frá þremur bestu einkunnum knapa í hverri keppnisgrein óháð því hvaða hest hann situr.
Fáar keppnisgreinar eru á jafn mikilli uppleið og skeiðgreinar og er mikil þátttaka í þessum greinum í flestum aðildarlöndum FEIF. Knapar leggja mikinn metnað í að mæta með skeiðhesta sína vel undirbúna þar sem hugað er að öllu atlæti.
Þegar heimslistinn í 250 metra skeiði er skoðaður sést það vel hversu fljótir hestarnir eru, og margir hestar fara undir 22 sekúndum í þessari lengstu hlaupalengd skeiðgreina.
Efstur á heimslistanum er Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu en þeir eiga ótrúlegan feril að baki og eru heimsmetshafar í þessari grein á tímanum 21,15 sekúndum.
Í öðru sæti á listanum er annar af fulltrúum Íslands í 250 metra skeiði, Guðmundur Björgvinsson og Glúmur frá Þóroddsstöðum. Glúmur er öskufljótur og þegar hann hittir á sprettinn þá ná fáir hestar sömu hröðun og Glúmur. Spennandi að sjá hvernig þeim Guðmundi og Glúm tekst til á HM.
Í þriðja sæti á listanum er ríkjandi heimsmeistari í þessari grein Markus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti. Þeir félagar eru skráðir til leiks á heimsmeistaramótinu og ætla sér að verja titilinn.
Sæti. Var áður. Knapi Meðaltal Þrír bestu timar
1 (1) Konráð Valur Sveinsson 21.267 21.15″; 21.23″; 21.42″ (of 10)
2 (2) Guðmundur Björgvinson 21.413 21.22″; 21.29″; 21.73″ (of 5)
3 (3) Markus Albrecht Schoch 21.590 21.46″; 21.62″; 21.69″ (of 9)
4 (4) Árni Björn Pálsson 21.607 21.30″; 21.62″; 21.90″ (of 5)
5 (5) Sigurbjörn Bárðarson 21.633 21.16″; 21.80″; 21.94″ (of 8)
6 (6) Aðalsteinn Aðalsteinsson 21.680 21.54″; 21.63″; 21.87″ (of 6)
7 (7) Þorvaldur Árnason 21.753 21.65″; 21.71″; 21.90″ (of 5)
8 (8) Charlotte Cook 21.923 21.72″; 22.01″; 22.04″ (of 10)
9 (12) Viktoria Große 22.020 21.69″; 21.73″; 22.64″ (of 7)
10 (10) Thomas Vilain Rørvang 22.067 21.73″; 22.23″; 22.24″ (of 9)
Styttu haustið með EiðfaxaTV