Örmerkingarnámskeið
Að námskeiði loknu geta þátttakendur sótt um leyfi til örmerkinga hrossa hjá MAST, á grundvelli laga um velferð dýra. Námskeiðin verða haldin á þremur stöðum, verði þátttaka næg:
- Hvolsvöllur, föstudagur 17. janúar / (síðasti skrán.dagur fös. 10. janúar).
- Hvanneyri, föstudagur 24. janúar / (síðasti skrán.dagur fim. 16. janúar).
- Akureyri, fimmtudagur 30. janúar / (síðasti skrán.dagur fim. 23. janúar).
Um er að ræða eins dags námskeið, bæði bóklegt og verklegt, frá kl. 9:00-16:00. Námskeiðsgjald er kr 50.000,- með einni örmerkingabók innifalinni í verði. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku hjá Pétri Halldórssyni í síma 862 9322/516 5038 eða í gegnum netfangið [email protected].
Athugið að félagar í Bændasamtökum Íslands geta átt rétt á styrk úr Starfsmenntasjóði BÍ.
Sjá nánar:
Upplýsingar um Starfsmenntasjóð BÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH