Ásta Covert efst með 7,70
Töltið er byrjað hér í Berlín. Vignir Jónasson og Bragi frá Kópavogi áttu að vera fyrstir í braut en þeir eru búnir að afskrá. Fyrsti íslendingur í braut er Flosi Ólafsson og Möller frá Blesastöðum 1A en þeir eru í hollinu sem byrjar kl 9:30.
Efst sem stendur er Ásta D. Bjarnadóttir-Covert á Dynjanda frá Dalvík með einkunnina 7,70 og í öðru sæti er Unn Kroghen Aðalsteinsson og Hrafndynur frá Hákoti eru efst sem stendur með 7,17 í einkunn
Þeir sem keppa í töltinu fyrir íslandshönd eru Flosi, Hinrik Bragason, Karen Líndal Marteinsdóttir, Arna Ýr Guðnadóttir og Jóhann R. Skúlason. Jóhann og Hnokki eru síðastir í braut. Haukur Tryggvason og Hetta frá Ketilsstöðum voru skráð í töltið en eru búin að afskrá.
Í dag er forkeppni í tölti og á eftir þeim er síðan A úrslit í tölti ungmenna , sýning ræktunarbúa og 250m. skeið.
Niðurstöður í augnablikinu :
POS#RIDER / HORSETOT
01:172Ásta D. Bjarnadóttir-Covert [US] – Dynjandi frá Dalvík [IS1997165190]7,70 PREL 7,7 – 8,0 – 7,7 – 7,7 – 7,7
02:154Unn Kroghen Aðalsteinsson [SE] – Hrafndynur frá Hákoti [IS2005186427]7,17 PREL 7,5 – 7,5 – 7,0 – 7,0 – 7,0
03:074Katie Brumpton [FI] – Smári från Askagården [SE2002101468]7,00 PREL 6,8 – 6,8 – 7,0 – 7,2 – 7,7
04:095Jemimah Elizabeth Adams [GB] – Kraftur frá Kvistum [IS2004181961]6,27 PREL 6,2 – 6,3 – 6,0 – 6,3 – 6,5
05:148Johanna Wingstrand [YR] [SE] – Herkules fra Pegasus [DK2001105650]6,23 PREL 6,5 – 6,2 – 5,7 – 6,2 – 6,3
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH