Elka í Hestum og hestamönnum

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Tíunda tölublað út á morgun

Í tíunda tölublaði Hesta og hestamanna, sem kemur út á morgun, fimmtudag, er grein eftir Elku Guðmundsdóttur, viðskiptafræðing og hrossabónda á Borg í Þykkvabæ. Þar fer hún yfir kosti Netsins sem sölumiðils í hestasölu. Hún og eiginmaður hennar, Jóhann G. Jóhannsson, hafa haldið úti öflugri sölusíðu á Netinu, www.hest.is, í nokkur ár og selja nánast öll hross í gegnum hana. Elka fer í greininni yfir hvað þarf að varast og hvað þarf að leggja áherslu á í Netsölu, en þar gildir að veita nákvæmar og heiðarlegar upplýsingar svo traust komist á milli kaupanda og seljanda. Vegna þess að kaupandinn kaupir vöruna í flestum tilfellum án þess að prófa hana og sjá, nema á mynd eða myndbandi.

Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622, eða á Netinu með því að smella HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link