Úrvalstöltarar í Meistaradeild

  • 13. mars 2013
  • Fréttir
Úrvalstöltarar í Meistaradeild

Knapar í Meistaradeildinni í hestaíþróttum tjalda því besta sem til er í töltkeppni mótaraðarinnar, sem fram fer annað kvöld í Ölfushöllinni.

Jens Einarsson:

Sigursteinn Sumarliðason mun ríða á vaðið á glæsihryssunni Skjönn frá Skjálg, sem hann sýndi í elsta flokki á LM2012 í Reykjavík. Skjönn er ekki með keppnisferil í sportinu en er með 9,0 fyrir tölt í kynbótadómi og 8,5 fyrir hægt tölt. Hún er með 9,0 fyrir fegurð í reið.

Guðmundur Björgvinsson er skráður með Íslandsmeistarann í fjórgangi Hrímni frá Ósi og Sigurbjörn Bárðarson með Jarl frá Mið-Fossum. Báðir töltarar í fremstu röð. Ólafur Ásgeirsson mun ríða á stóðhestinum Stíganda frá Stóra-Hofi, mýktar og yfirferðar hestur á tölti sem hefur gert það gott í sporti.

Árni Björn Pálsson er skráður til leiks á Íslandsmeistaranum í tölti, Stormi frá Herríðarhóli, Aronssyni frá Strandarhöfði. Það er spennandi að sjá hvar Stormur er á vegi staddur í þjálfuninni en telja má víst að Árni Björn ætli honum stóra hluti í sumar.

Olil Amble mætir með Kraflar frá Ketilsstöðum, en þau gerðu skemmtilega hluti saman í Gæðingafiminni fyrir tveimur vikum síðan. John Sigurjónsson situr Tón frá Melkoti sem er í fremstu röð töltara og Hinrik Bragason teflir fram töltaranum Smyrli frá Hrísum, sem var efstur eftir forkeppni í tölti á LM2012.

Þetta er er aðeins brot af úrvalinu og ekki víst að þeir sem hér eru nefndir standi á toppnum þegar úrslit hafa verið riðin annað kvöld. Fólki er bent á að kaupa má miða í forsölu í verslunum Líflands og Top Reiter í Reykjavík og í Baldvin og Þorvaldi á Selfossi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link