Frostmarka eigendur minntir á endurnýjun

  • 22. janúar 2020
  • Fréttir
Ólafur Dýrmundsson markavörður og fyrrv. ráðunautur vill koma eftirfarandi á framfæri

Nú á þessu ári stendur til að gefa út nýja markaskrá. Samkvæmt lögum á að gefa þær út á átta ára fresti.

„Sem markavörður Landnáms Ingólfs Arnarsonar er ég að undirbúa útgáfu markaskrár 2020 fyrir umdæmið. Sama er í gangi um allt land hjá öðrum markavörðum.

Þótt mest sé um eyrnamörk að ræða er mikið af frostmörkum hrossa að ræða hjá mér, mun meira en hjá nokkrum öðrum markaverði, 165 í mínu umdæmi en aðeins rúmlega 20% hafa endurnýjað skráningu þótt ég hafi sent öllum bréf í byrjun desember. Fyrir viku sendi ég öllum hestamannafélögum í Landnáminu, 10 að tölu, óskir um að minnt væri á skráningu frostmarka á heimasíðum eða með öðrum hætti. Hef framlengt skilafrestinn til 1. febrúar.

Frostmörk sem ekki verða tilkynnt falla út, koma ekki í nýju markaskránni og ekki heldur í Landsmarkaskránni á vefnum.

Hafa bréf týnst eða þau ekki borist má hafa samband við mig í [email protected] eða í síma 841-1346.“

Ólafur Dýrmundsson

Ólafur Dýrmundsson, mynd: Bændablaðið

 

 

 

Þeim sem vilja fræðast meira um markaskrár og það sem þeim tengist er beint á hlaðvarp bændasamtakanna.

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link