Hverjir verða í landsliðshópnum?

  • 22. janúar 2020
  • Fréttir
Nýir landsliðshópar í hestaíþróttum verða kynntir í Líflandi fimmtudaginn 23. janúar kl. 15.00. Kynntir verða landsliðshópar í flokki fullorðinna og U21 árs og verða þeir starfandi árið 2020.

Stærsta verkefni landsliðanna á árinu er Norðurlandamót í hestaíþróttum sem haldið verður í Svíþjóð dagana 27. júlí til 2. ágúst. Þar er einnig keppt í gæðingakeppni, auk íþróttakeppninnar og skeiðgreina, og því mótið að ýmsu leiti frábrugðið Heimsmeistaramótum. Það hefur tíðkast á þessum mótum að knapar í íslenska landsliðinu fái keppnishesta af meginlandi evrópu lánaða eða þeir knapar sem búa og starfa í evrópu taki þátt fyrir Íslands hönd.

Það má segja að þetta sé í annað skiptið sem landsliðshópar Íslands í hestaíþróttum séu tilkynntir með þessum hætti en í fyrra var tilkynnt um landsliðshópa í lok febrúar og á sama tíma gerðar opinberar breyttar áherslur í afreksmálum LH.

Það er ljóst að margir knapar koma til greina í landsliðshópa, hvort sem er í landslið fullorðinna eða U-21. Breiddin er alltaf að aukast í knapavali og afreksíþróttamenn í röðum hestamanna eru víða. Það verður því spennandi að sjá hverja landsliðsþjálfaranir velja í landslið Íslands í hestaíþróttum. Landsliðsþjálfarar velja knapa í landsliðshópana með tilliti til árangurs, reiðmennsku, hestakosts og íþróttamannslegrar framkomu.

Eiðfaxi lagðist í örlitla rannsóknarvinnu og telur að, auk þeirra sem voru í landsliðshópum í fyrra, komi eftirfarandi knapar til greina í landslið fullorðinna. Sé eingöngu miðað við keppnisárangur síðasta árs!

Davíð Jónsson – Íslandsmeistari í gæðingaskeiði.

Edda Rún Ragnarsdóttir – Er með þeim efstu á stöðulista í gæðingaskeiði árið 2019

Eyrún Ýr Pálsdóttir – Náði góðum árangri á síðasta ári og þá sérstaklega í fimmgangi

Jóhann Kristinn Ragnarsson – Náði góðum árangri sérstaklega í gæðingaskeiði

Jóhann Magnússon – Var í fremstu röð í skeiðgreinum á síðasta ári.

Magnús Bragi Magnússon – Náði góðum árangri á síðasta ári og þá sérstaklega í gæðingaskeiði.

Matthías Leó Matthíasson – Var í úrslitum í tölti, fjórgangi og slaktaumatölti á Íslandsmótinu.

Ragnhildur Haraldsdóttir – Var í úrslitum í fjórgangi á flestum af stærstu mótum ársins.

Sigursteinn Sumarliðason – Var í fremstu röð í skeiðgreinum á síðasta ári.

 

Þeir 20 knapar sem voru í landsliðshópi í fyrra (2019) eru eftirfarandi.

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Árni Björn Pálsson
Ásmundur Ernir Snorrason
Bergþór Eggertsson
Guðmundur Björgvinsson
Hanna Rún Ingibergsdóttir
Haukur Tryggvason
Helga Una Björnsdóttir
Hinrik Bragason
Hulda Gústafsdóttir
Jakob Svavar Sigurðsson
Jóhanna Margrét Snorradóttir
Jóhann Skúlason
Olil Amble
Siguroddur Pétursson
Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Teitur Árnason
Viðar Ingólfsson
Þórarinn Eymundsson
Þórarinn Ragnarsson

Auk þess voru þrír titilhafar úr ungmennaflokki frá því á HM 2017.
Konráð Valur Sveinsson
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Máni Hilmarsson

Þeir knapar sem voru í u-21 árs landsliðshópi í fyrra eru eftirfarandi.

Arnar Máni Sigurjónsson
Atli Freyr Maríönnuson
Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Benjamín Sandur Ingólfsson
Bríet Guðmundsdóttir
Egill Már Þórsson
Glódís Rún Sigurðardóttir
Guðmar Freyr Magnússon
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir
Hákon Dan Ólafsson
Katla Sif Snorradóttir
Kristófer Darri Sigurðsson
Thelma Dögg Tómasdóttir
Viktoría Eik Elvarsdóttir
Ylfa Guðrún Svafarsdóttir
Þórdís Inga Pálsdóttir

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link