Viltu vita meira um fyrirhugaðar breytingar í kynbótadómi?

  • 23. janúar 2020
  • Fréttir
Kynbótaknapar, ræktendur og eigendur kynbótahrossa og aðrir áhugamenn um búfjárrækt. Takið eftir!

Hrossaræktarsamtök Suðurlands boða til fundar með Þorvaldi Kristtjánssyni ábyrgðarmanni hrossaræktarsviðs

Efni fundarins er að fara yfir áherslu væntanlegar breytingar í kynbótadómum, og dómskalann í heild sinni. Útfærslur og þýðingu.

Hver eru td. verkefnin sem sett verða fyrir hrossin?
Eru þau mismunandi eftir aldri og þjálfunarstigi?
Hvenær fer líkamsbeiting að telja inn í einkunn til hækkunar eða lækkunar?
Og margt fleira.

Staður: Rangárhöllin Hellu. Stund: Miðvikudagur 29.01.20 kl. 20.00

Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

 

Ljósmynd sem fylgir fréttinni er tekin við sköpulagsdóma á HM í Berlín.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link