Orðlaus af aðdáun
Nafn hrossaræktarstöðvarinnar Sunnaholts hefur borið oft á góma hestamanna undanfarið ár. Hross í eigu þess hafa vakið eftirtekt á sýningum og mótum og fréttir af kaupum Sunnaholts á fleiri hrossum hafa ratað í ljósvakamiðla. Færri þekkja til fólksins að baki nafninu eða hinni fjölbreyttu starfsemi sem hjónin Steffen og Angelika Langaard standa að.
Það er skemmst frá því að segja að saga Sunnaholts innan Íslandshestamennskunar er farsæl. Starfsemi hrossaræktarstöðvarinnar hófst árið 2006. Hún er staðsett á fallegri hæð í friðsælu umhverfi á heimaslóðum Angeliku í Bavaríuríki. Öll aðstaða þar er til fyrirmyndar fyrir bæði menn og hesta og umhverfis búgarðinn liggja fallegar reiðleiðir gegnum skóga og engi. Sunnaholt er einnig þjálfunarstöð og við það starfa þrír tamningamenn, þar á meðal Isabella dóttir hjónanna, ásamt nokkrum aðstoðarmönnum.
„Að sjálfsögðu er traust og góð lund mikilvægur eiginleiki, en við horfum einnig í vænlega framgöngu og fasið,“ segja Steffen og Angelika þegar þau eru innt eftir því hvernig hross þau velji sér. Ekki var úr vegi að spyrja hvað það var í hinum ungu og efnilegu stóðhestum, Óskari frá Blesastöðum 1A, Korgi frá Ingólfshvoli og Narra frá Vestri-Leirárgörðum sem hreif þau. „Þegar við sáum þá í fyrsta skipti vorum við svo heilluð að orð fá því ekki lýst,“ segja þau hlæjandi.
Steffen og Angelika Langaard eru í viðtali í 7. tölublaði Eiðfaxa.
Áskrifendur Eiðfaxa geta nú nálgast blaðið í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér. Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið [email protected]. Þá munum við opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH