Meistaradeild KS – Þúfur

  • 29. janúar 2020
  • Fréttir
Liðakynning í Meistaradeild KS

Þúfur er næsta lið sem við kynnum til leiks í Meistaradeild KS en þetta lið átti góði gengi að fanga á síðasta tímabili.

 

Mette Mannseth þarf vart að kynna en hún er liðsstjóri þessa liðs. Mette er yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum og reiðmeistari FT ásamt því að þjálfa hross og kenna á Þúfum og erlendis. Hún hefur náð virkilega góðum árangri í deildinni en á síðasta tímabili sigraði hún fjórgang ásamt því að ríða úrslit í fimmgangi, tölti og slaktaumatölti. Mette var valin íþróttaknapi, gæðingaknapi og knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Skagfirðing 2019.

 

Gísli Gíslason starfar við tamningar og þjálfun hrossa á Þúfum. Gísli hefur sýnt marga gæðinga á síðustu árum bæði í kynbótadóm og á keppnisvellinum. Sem dæmi má nefna sýndi hann Trymbil frá Stóra-Ási í 9,01 fyrir hæfileika og hlutu þeir annað sæti í A-flokki á Landsmóti hestamanna 2014 með einkunnina 9,19. Einnig sýndi hann Kolskegg frá Kjarnholtum & efsta 6v stóðhestinn sl.sumar Þór frá Torfunesi.

 

Bergrún Ingólfsdóttir er útskrifuð sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og einkaþjálfari frá ÍAK. Bergrún kom sem leynigestur inn í deildina í fyrra þar sem hún vakti verðskuldaða athygli með unga stóðhestinn Þórbjörn frá Tvennu og verður gaman að sjá hvaða hesta hún teflir fram í vetur. Bergrún var valin knapi ársins hjá hestamannafélaginu Neista árið 2019.

 

Barbara Wenzl er útskrifuð sem reiðkennari við Háskólann á Hólum. Hún starfar við tamningu og þjálfun hrossa á Bæ á Höfðaströnd ásamt því að rækta og þjálfa hross frá Engihlíð. Barbara hefur verið ötul á keppnis – og kynbótavellinum en margir muna eftir sýningu hennar í A-úrslitum í B-flokki á Landsmóti hestamanna 2014 þar sem hún sýndi Dal frá Háleggsstöðum með glæsibrag.

 

Lea Bush er útskrifuð sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Lea hefur gert það gott á keppnisvellinum með hestana sína Kaktus frá Þúfum og Þögn frá Þúfum.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link